Glæsilegt heilsárshús við Víðibrekku 21 í Grímsnesinu. Glæsilegt útsýni.Sumarbústaðurinn er á 7.730fm. eignarlóð. Byggður 2008 og er skráður 134,2fm. Að auki fylgir með bílskúr sem er skráður 40fm.
Árið 2020 var bústaðurinn (ekki í fm.) og pallurinn stækkaður, klæddur að utan ásamt því að útbúin var sauna.Stór og fallegur pallur í kringum allt húsið.Neðri hæð:Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhús er opið inn í stofu með stórri eyju og góðu skápaplássi. Stór eldavél, tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa: Harðparket á gólfi og útgengt út á nýlega yfirbyggða sólstofu:
Sólstofa: Um 50fm. Flísalögð og hiti í gólfi. Tvöföld hurð með útgengi út á suðvestur pall með miklu útsýni.
Svefnherbergi 1: Svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Rýmist vel hjónarúm þar inni.
Svefnherbergi 2: Harðparket á gólfi og í dag er koja þar inni með tvöfaldri neðri dýnu.
Baðherbergi 1: Flísar á gólfi og snyrtilegur sturtuklefi. Innrétting og skápar ásamt upphengdu salerni.
Baðherbergi 2: Flísar á gólfi, upphengt salerni ásamt "walk-in" sturtu. Útgengt úr baðherbergi út á pall þar sem heiti potturinn og saunan er.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Í dag er einnig ísskápur inni í þvottahúsinu. Útgengt úr þvottahúsi út á pall.
Efri hæð:Svefnherbergisgangur með timburgólfi
Svefnherbergi 1: Stórt fjölskylduherbergi með timburgólfi, útgengt á svalir úr herbergi. Í dag er svefnpláss og rúm fyrir fimm manneskjur í herberginu.
Svefnherbergi 2: Timburgólf. Í dag er hjónarúm ásamt barnarúmi í þessu herbergi.
BílskúrSteypt og lakkað gólf. Mikil lofthæð. Í dag er bílskúrinn notaður sem hobby herbergi. Sambyggt bílskúrnum er annar bílskúr sem notaður er sem geymsla en er með innkeyrsluhurð Innangengt er á milli bílskúranna.
Pallur:Stór pallur er í kringum allt húsið ásamt aukapalli til austurs við bílskúrinn. Nýlegur heitavatnspottur á pallinum. Við hliðina á heita pottinum er
glæsileg sauna með útsýni til austurs.
Undanfarin tvö ár hefur eignin öll verið tekin í gegn að innan sem utan og bætt við hann sólstofu, heitum pott og saunu. Bústaðurinn er nýlega málaður og pallurinn stækkaður. Glæsilegt útsýni.
Bústaðurinn hefur verið í skammtímaleigu undanfarin misseri með svefnpláss fyrir tólf fullorðna og eru góðar bókanir framundan sem hægt væri að taka yfir.Möguleiki er að allt innbú fylgi bústaðnum.Í dag er bústaðurinn á byggingarstigi 4, en verður afhentur nýjum eigendum á byggingarstigi 7Innhringihlið er að bústaðnum.Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband við:
Helgafell fasteignasala, sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., Sími 775 5805 /
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.