Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna glæsilegt og mjög vandað sumarhús ásamt gestahúsi við Merkihvoll 3 í Landssveit. Stór og góður pallur í kringum húsið og lóðin kjarri vaxinn. Selst með öllu innbúi. Stutt í margar náttúruperlur. Sumarhúsið skiptist í:Forstofa með parketi á golfi.
Stofa og eldhús er í opnu rými, eldhús með fínum innréttingum, fínn borðkrókur og viðar kamína í stofu.
Svefnherbergin tvö eru bæði með parketi á gólfi. Fataskápur í öðru herberginu.
Baðherbergi er með sturtuklefa, innrétting, opnanlegum glugga og dúk á gólfi.
Geymsla er með flísum á gólfi. Rafmagnstúpa fyrir neysluvatn er þar.
Gestahús er með tveimur herbergjum, búið er að leggja fyrir salerni í öðru herbergi. Einnig er hægt að opna á milli herbergja.
Geymslugámur er á lóðinni.
Sumarhúsið er skráð samkvæmt FMR 47,5 fm og gestahúsið 29,8 fm. Lóðin er leigulóð og er 4340fm. Rafmagnsofnar eru í báðum húsum. Borhola á lóðinni og aðgangur að annarri á næstu lóð. Leiðarlýsing: Ekið er út af þjóðvegi á átt að Galtalæk. Ekið framhjá Galtalæk og beygt til hægri þar sem merkt er Merkihvoll.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 /
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.