Helgafell fasteignasala kynnir til sölu:
Reykjavíkurvegur 64, neðri hæð.Í húsnæðinu hefur verið starfræktur píluklúbbur með öllum tilskildum leyfum fyrir 80 manns.
Húsnæðið er 271,2fm. að stærð og er með tveimur inngöngum ásamt stórri innkeyrsluhurð.
Lofthæð er 3,5M og 3M undir bita.
Skipt var um þak á húsnæðinu í sumar og búið að setja nýtt skýli fyrir framan húsnæðið yfir inngangana.
Húsnæðið hefur allt verið tekið í gegn að innan undanfarin tvö ár. Epoxíð á gólf, uppfærð fullkomin loftræsting, rafmagn lagað og fjögur ný salerni sett upp. Nýr bar með vask, klakavél og uppþvottavél. Sonos hljóðkerfi, tvö sjónvörp, öflugt netkerfi, sérsmíðuð píluspjöld ásamt píluspjöldum fyrir fatlaða.
Starfsmannaaðstaða, skrifstofa ásamt umbúðalager, ræstikompu og salernisaðstöðu fyrir starfsmenn.
Húsnæðið selst sér,
en möguleiki er að kaupa húsnæðið með nánast öllu innbúi svo hægt sé að halda áfram rekstri á píluklúbbnum sem hefur verið í góðum rekstri undanfarið ár.Sameiginlegt malbikað stæði er á lóðinni.
Fyrir liggur samþykkt frá Hafnarfjarðarbæ um hækkun hússins um tvær hæðir með tilliti til deiliskipulags svæðisins.Smelltu hér til að opna söluyfirlitFyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband við:Helgafell fasteignasala, sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5805 /
[email protected] ----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.