Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali s. 893 3276 og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu nýlegt, fallegt og smekklega innréttaða 4ra herbergja miðjuraðhús í Ísleifsbúð 24. Birt stærð eignar er 120.1 fm. Frábær staðsetning á fallegum stað í suðurjaðri Búðarhverfis þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði. Skipulag eignarinnar:Forstofa, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Stofa / borðstofa: Í alrými er björt og rúmgóð stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stóran suðvestur sólpall með heitum potti.
Eldhús: Í alrými er eldhús með fallegri brúnni Ikea innréttingu, bakstursofn, örbylgjuofn, keramik helluborð, háfur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi, góðir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi.
Baðherbergi: Fallegt og rúmgott baðherbergi, góð Ikea innrétting, stór spegill með ljósum, walk inn sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Flísalagt gólf, vinnuborð og hillur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Flísalögð, lúga með stiga upp á rúmgott geymsluloft, hitastýring fyrir heita pottinn.
Húsið: Er byggt 2019 og er timburhús klætt með steni. Led lýsing er í öllum rýmum nema þvottahúsi og geymslu, gólfsíðir gluggar eru í húsinu sem gefa því mikla birtu.
Lóð: Framan við húsið er malarlögð innkeyrsla. Á suðvesturhliðinni er glæsilegur ca. 60-70 fm. sólpallur með heitum potti.
Staðsetning: Smellið hér.Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast:
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða [email protected]
Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.