Helgafell fasteignasala, Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Ragnheiður Árnadóttir löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega vel staðsett 5 herbergja einbýlishús á 3 pöllum með innbyggðum bílskúr. Eignin er samtals 159 fm. þar af er íbúðarhluti 116,2 fm., bílskúr 42,8 fm. Umhverfis húsið er stór gróinn garður með sólpöllum á vestur og norðurhlið. Húsið er vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.Eignin skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:Forstofa: Flísalögð forstofa með fatahengi.
Eldhús: Eldri innrétting, flísar milli skápa, hurð niður í þvottahús og bílskúr, ekkert gólfefni. Geymsluloft ofan við eldhús, innangengt úr barnaherbergi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt, hátt er til lofts, nýtt parket og nýr stigi upp í svefnherbergisálmu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, teppi á gólfi, útgengi út á suður svalir.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með innbyggðum skápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi
Svefnherbergi 4: Inn af forstofu er rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting/speglaskápur, sturta, upphengt salerni.
Þvottahús: Innrétting undir þvottavél og þurrkara, vinnuborð og skápur, upphengdar snúrur, útgengi út í bílskúr, flotað gólf. Gönguhurð út á sólpall á norðurhlið.
Geymsla: Inn af þvottahúsi, gluggi, hillur, flotað gólf.
Bílskúr: Flotað gólf, vinnuborð, ekkert niðurfall er í gólfinu.
Lóð: Stór gróin lóð, framan við húsið er malalögð innkeyrsla, steypt stétt fram við útidyrahurð, sólpallur á vestur og norðurhlið, steypt innkeyrsla að bílskúr. Fánastöngin fylgir ekki með.
Að sögn eiganda er búið að endurnýja og lagfæra eftirfarandi:* 2020 Nýtt parket sett á stofu, gang á efri palli og tvö svefnherbergi á efri palli.
* 2020 Nýjar hurðar é efri pall og nýir karmar á neðri hæð.
* 2020 Nýr stigi settur upp á efri pall.
* 2020 Nýr sturtuklefi.
* 2019 Nýtt svalahandriði á svölum í hjónaherbergi.
* 2019 Ný girðing á norðurhlið garðsins.
* 2018 Byggður nýr sólpallur á norðurhlið og búin til innkeyrsla á vesturhlið.
* 2013 Baðherbergi endurnýjað.
Eignina er hægt að skoða með stuttum fyrirvara!Allar nánari upplýsingar veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða [email protected] og Ragnheiður Árnadóttir, löggildur fasteignasali, í síma 697-6288 eða [email protected].Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.