Bugðufljót 15D 270 Mosfellsbær
Bugðufljót 15D , 270 Mosfellsbær
56.000.000 Kr.
Tegund Atvinnuhúsnæði
StærÐ 157 m2
HERBERGI 0 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
0 0 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 0 55.050.000 0
Tegund Atvinnuhúsnæði
StærÐ 157 m2
HERBERGI 0 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
0 0 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2023 0 55.050.000 0

BUGÐUFLJÓT 15D, 270 MOSFELLSBÆ. Nýtt atvinnuhúsnæði

Bil til norðurs merkt 01 0108.
Birt stærð er 157,3 fm., þar af er samþykkt milliloft 50,1fm.

ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT

Lýsing eignar: 
Húsið við BUGÐUFLJÓT 15 samanstendur af 16 iðnaðarbilum. Birt flatarmál þess er 2.603,9 fm. og stendur það á 6.108 fm.iðnaðarlóð.
Byggingarár er 2023. 
Lofthæð frá tæpum 5 metrum upp í tæpa 10 metra þar sem hún er hæst.
4,3 m. há innkeyrsluhurð. 
Timburstigi með handriði milli hæða.
Húsið er límtréshús frá LímtréVírnet ehf., klætt steinullar-yleiningum. Húsið verður fullfrágengið við afhendingu. 
Bílaplan verður malbikað með niðurföllum, olíuskiljum og sorpaðstöðu. 
Húsið er byggt á steinsteyptum undirstoðum. Gólf er steinsteypt með epoxý (Vespox EW-V) yfirlagi. Burðarvirki veggja og þaks er límtré. 
Gluggar og hurðir í útveggjum eru úr plasti í hvítum lit. 
Hvert bil er með baðherbergi og ræstivaski.
ATH. Innimyndir geta verið af öðru bili í húsinu.

Eignin er í útleigu með 6 mánaða uppsagnafresti. Kaupandi yfirtekur leigusamning næstu mánaðarmót eftir kaupsamning.

Aðgengi og lóð: 
Við húsið eru 48 bílastæði. Þrjú bílastæði tilheyra hverju bili. Auk þess tilheyrir hverju bili svæði út að lóðamörkum að fráskildri gegnumkeyrslu. 
Hvert bil hefur því ca. 100 – 200 fm. útisvæði ásamt góðu sameiginlegu svæði. Útilýsing verður beint niður á nálægt svæði.

Mjög góð staðsetning í Mosfellsbæ í ört vaxandi hverfi.

Gatnagerðargjöld eru greidd af seljanda. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, sem er 0,3% af verðandi brunabótamati eignar og  innheimt við endanlegt brunabótamat hennar.  
Áhvílandi er á eigninni vsk. kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.

Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / [email protected]
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.