*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna fallegt og vel skipulagt 5 - 6 herbergja einbýlishús með bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 162,5 fm., þar af er íbúðahluti 134.5 fm. og bílskúr 28 fm. Húsið er staðsett í rólegu og barnvænu hverfi miðsvæðis í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttahús og verslanir.
Garðurinn er fallegur og skjólsæll með afgirtum sólpall framan við húsið.GETUR VERIÐ LAUST FLJÓTLEGA.Skipulag eignar: Forstofa, stofu/borðstofa, eldhús, 4-5 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gangur, búr/geymsla og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fatahengi, hægt er að koma þar fyrir fataskáp.
Stofan / borðstofa: Stór og björt stofa, parket á gólfi.
Eldhús: Góð Fagus innrétting, uppþvottavél og ísskápur sem fylgja með, bakaraofn, háfur og helluborð, borðkrókur, flísar milli skápa, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, nýir sérsmíðaðir hvítir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi / vinnuherbergi / geymsla: Inn af eldhúsi er lítið aukaherbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri innréttingu, baðker / sturta, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Gangur: Parket á gólfi.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, málað gólf. Útgengt út á malbikað innkeyrslu.
Geymsla / búr: Inn af eldhúsi er geymsla/búr, málað gólf.
Bílskúr: Sérstæður 28 fm. bílskúr, óeinangraður, malbikuð innkeyrsla, upphitun með affalli, ómálað gólf.
Lóð: Lóðin er 662,6 fm. Ákaflega fallegur, skjólsæll og gróinn garður. Framan við húsið er steypt stétt að hús og afgirtur ca. 30 fm. sólpallur.
Húsið hefur verið endurnýjað mikið að utan og að hluta að innan undanfarin ár m.a.:* 2023 Verið er að setja nýtt járn og þakpappa á viðbyggingu.
* 2021 Steypuviðgerðir á ytra byrði og húsið málað að utan.
* 2021 Rennur og niðurföll í þaki endurnýjaðar að hluta.
* 2021 Tréverk málað.
* 2021 Frárennslislögn mynduð.
* 2021 Nýir fataskápar í hjónaherbergi.
* 2021 Nýtt parket í þremur svefnherbergjum.
* 2021 Nýtt gler í gluggum í íbúðarhúsinu. Gluggar yfirfarnir og lagaðir, málaðir að utan og innan.
* 2015 Búið er að skipta um tvo glugga (pvc / stofu og einu svefnherbergi).
* Nýr forhitari fyrir ofnakerfið.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða
[email protected].
Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.