Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:
Eitt af glæsilegri raðhúsum við Hvassaleiti í Reykjavík. Húsið er byggt 1962 og hannað af Gunnari Hanssyni arkitekt sem þótti djarfur og í senn rómantískur í hönnun sinni og bera verk hans með sér ákveðinn léttleika og fágun sem njóta sín vel í þessu húsi. Hvassaleiti 103 er fallegt og vel skipulagt 228,3 fermetra raðhús sem telur fjórar hæðir á pöllum. Húsið er staðsett innarlega í botngötu og öll helsta þjónusta er í göngufæri, s.s. verslun, skólar o.fl. Hús sem þessi koma sjaldan í sölu.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, hol, gestasalerni, stofu / borðstofu, svalastofu, eldhús, svefnherbergisgang, fimm svefnherbergi, baðherbergi, í kjallara með sérinngagni er þvottahús, geymslur og eitt af svefnherbergjunum, bílskúr.
Nánari lýsing:Anddyri: Komið inn í flísalagða forstofu.
Hol: Úr forstofu er komið inn í hol með fataskáp, marmaraflísar á gólfi.
Gestasnyrting: Inn af holi, vaskur, skápur, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Stofa / borðstofa: Úr holi er gengið upp í stóra og bjarta stofu / borðstofu með mikilli lofthæð. Komið er upp í borðstofuna sem er á neðri palli og þaðan gengið upp í stofu. Milli borðstofu og stofu er glæsilegur arinn hannaður af Gunnari Einarssyni innanhússarkitekt, parket á gólfi.
Svalastofa: Bætt hefur verið við stofu með því að byggja yfir stórar svalir ca. 22,5 fermetra svalastofu með opnanlegum gluggum sem snúa út í garði, marmaraflísar á gólfi.
Eldhús: Úr borðstofu er gengið inn í eldhús með upprunalegri innréttingu, bakaraofn og helluborð, flísar milli skápa, borðkrókur, parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Úr holi er gengið niður flísalagðar tröppur á neðri hæð þar sem eru
þrjú svefnherbergi. Inn af holi er
forstofuherbergi og í kjallara er
svefnherbergi með sérinngangi.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi, útgengt út í garð með suðvestur sólpalli, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 með teppi á gólfi.
Svefnherbergi 3 með fataskáp, parket á gólfi.
Forstofuherbergi 4 með dúk á gólfi.
Svefnherbergi 5 í kjallara með dúk á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, innbyggður speglaskápur, baðker, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Kjallari: Komið er niður í kjallara með sérinngangi. Þar er svefnherbergi, þvottahús og geymslur, dúkur á gólfi.
Bílskúr: Birt stærð 21,6 fermetrar, hiti, kalt vatn, borð og hillur, ómálað gólf.
Lóð: Framan við húsið eru steyptar tröppur og steypt innkeyrsla, á baklóð er fallegur gróinn garður með suðvestur sólpall.
Húsið: Er steypt og byggt 1962. Húsið er hluti af Hvassaleiti 113-101 sem eru sjö raðhús.
Hvassaleiti tilheyrir Háaleiti og Bústöðum. Eignin er vel staðsett, skjólsælt og gróið hverfi og útivistargildi svæðisins er talsvert. Gott aðgengi er að hjóla- og göngustígum og öllum helstu stofnbrautum. Hverfið tengist gömlum og rótgrónum hverfum og mjög stutt í alla verslun og þjónustu.
Hér er um að ræða einstaka eign sem býður upp á fjölbreytta möguleika þar sem hægt er að leika sér með notagildið og fagurfræðina bæði innan og utandyra. Sjón er sögu ríkari.HÚSIÐ HEFUR VERIÐ Í EIGU EINNAR FJÖLSKYLDU. INNRÉTTINGAR ERU UPPRUNALEGAR OG ÁSTAND Á ÞAKI OG LÖGNUM EKKI FYLLILEGA ÞEKKT. KAUPENDUR ERU ÞVÍ HVATTIR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA MEÐ ÞAÐ Í HUGA OG LEITA SÉR AÐSTOÐAR FAGMANNS.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]. ----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.