Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu efri hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað miðsvæðis í Þorlákshöfn. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 79,8 fm. Þar af er íbúðarhlutinn 60,8 fm. og geymsla/þvottahús 19 fm. Húsið er vel staðsett í elsta hluta Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug. Frábær fyrstu kaup. Skipulag eingar: Sameiginleg forstofa, eldhús, stofa/borðstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús/geymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX Hafið samband við Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali í s: 893-3276 til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun. Lýsing eignar:Sameiginleg forstofa: Komið er inn í sameiginlega flísalagða forstofu. Teppalagður stigi.
Eldhús: Bjart með stórum glugga, hvít innrétting, eldavél, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með hvítum skáp, parket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Dúklagt gólf og veggir við baðker, hillur, tengi er fyrir þvottavél.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, lakkaður panill á veggjum og lofti, parket á gólfi.
Gangur: Parketlagður, fatahengi.
Þvottahús / geymsla: Á norðurhlið hússins er gengið inn í 19 fm. upphituð sérgeymslu/þvottahús með hillum, málað gólf, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er geymslurými inn af eldhúsinu, undir súð.
Lóð: Sameiginleg 867,9 fm gróin gróin lóð, stétt fyrir framan anddyri, möl í plani. Hellulagður pallur fyrir framan geymslu/þvottahús.
Húsið: Er bárujárnsklætt að utan, var málað að utan sumarið 2021, nýtt járn var sett á þakið fyrir ca. 4 árum.
Að sögn eiganda hefur eftirtalið verið endurnýjað:* Þakjárn endurnýjað fyrir nokkrum árum.
* Húsið var málað að utan 2021.
* Vatnslagnir á baðherbergi og eldhúsi hafa verið endurnýjaðar.
VEL SKIPULÖGÐ EFRI HÆÐ - TILVALIN FYRSTU KAUP.
Nánari upplýsingar og bókun í skoðun gefa:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s: 893-3276 eða á netfangið
[email protected].
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er velvið bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.