Krummahólar 8 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
Krummahólar 8 , 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
57.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 120 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1976 44.310.000 59.750.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 120 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1976 44.310.000 59.750.000 0

KRUMMAHÓLAR 8, 111 REYKJAVÍK.

Falleg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með stæði í bílageymsluhúsi. Íbúð merkt 01 0210 og bílastæði merkt 02 0010.
Birt stærð eignar er skráð 120,8 fm. þar sem bílastæði er inní fermetratölunni.
Íbúðin sjálf er 97 fm., þar af 7 fm. geymsla.  

ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT


Húsið er sjö hæða steypt lyftuhús. Byggt árið 1976. 
Komið er inní parketlagða forstofu með fataskáp.
Parketlögð björt stofa með útgengi á stórar suðursvalir.  
Eldhús með flísum á milli efri og neðri skápa. Rúmgóð eldri U-laga innrétting þar sem eldhústæki geta fylgt með. Borðkrókur.
Tvö parketlögð svefnherbergi með skápum. Stórt hjónaherbergi með útgengi á suðursvalir. 
Flísalagt baðherbergi með baðkari. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Mynddyrasími. Ný útidyrahurð og nýlegt teppi á sameign.

Sérgeymsla á sömu hæð með hillum og opnanlegum glugga.
Þvottahús á jarðhæð þar sem eru þvottavél og þurrkari í eigu húsfélagsins.
Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Bílastæði í bílageymsluhúsi. Búið er að leggja kerfi fyrir rafhleðslustöðvar frá ON  (Orku Náttúrunnar) og hægt að kaupa stöð frá þeim eða leigja.

Góð staðsetning í Breiðholti. Stutt í verslanir, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / [email protected] 
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.