Helgafell fasteignasala kynnir til sölu:Vífilsgata 4 - 39,6fm. íbúð í kjallara.
Snyrtileg eign í 105 Reykjavík, með miðbæ Reykjavíkur í göngufæri.Íbúðin er skráð 36,9 fm með sér 2,7 fm. geymslu sem er í fermetratölu íbúðarinnar
Íbúðin er með opnu svefnrými að stofunni, opnu eldhúsi að stofu og baðherbergi.
Forstofa: Komið er inn í teppalagða forstofu, sem er skráð í sameign.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting, fínt skápapláss og opið til stofunnar.
Stofa: Parket á gólfi. Góð birta frá hornglugga.
Svefnrými: Parket á gólfi og opið til stofunnar - rýmið er gluggalaust.
Baðherbergi: Snyrtilegt, flísar á veggjum og gólfi ásamt sturtuklefa með flísalögðum veggjum. Nett innrétting.
Geymsla: Sér, skráð 2,7 fm.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og geymslurými.
Að sögn eiganda hefur húsið fengið gott og reglulegt viðhald. Húsið nýlega drenað.
Nýlega dregið í rafmagn að hluta. Nýlegir tenglar og rofar.
Nýleg eldavél og bakarofn.
Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina og búið að drena húsið.
Snotur íbúð í snyrtilegu í norðurmýrinni, sameiginlegur garður, eftirsóttur staður í göngufæri við miðbæinn og stutt í alla helstu þjónustu.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Skrifstofa Helgafells: Sími 566 0000Rúnar Þór Árnason lgf., sími: 775 5805 / email:
[email protected]----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.