Pálsbúð 7 815 Þorlákshöfn
Pálsbúð 7 , 815 Þorlákshöfn
93.400.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 180 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2020 89.900.000 82.050.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 180 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2020 89.900.000 82.050.000 0

*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu fallega 5 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr að Pálsbúð 7. Húsið er staðsett á góðum stað í Búðarhverfi. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 180 fm og þ.a. er íbúðahluti 144,6 fm og bílskúr 35,4 fm. 


Skipulag eignar: Forstofa, í alrými er stofa / borðstofa og eldhús, svefnherbergisgangur,  4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsla.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp, parket á gólfi.
Stofan / borðstofa:  Í alrými er rúmgóð og björt stofa / borðstofa, gönguhurð út á suðurhlið hússins, parket á gólfi.
Eldhús:  Í alrými með fallegri hvítri innréttingu og eldhúseyju með skúffum og skápum, stórt helluborð á eyjunni, bakaraofn og örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgir með, parket á gólfi.
Hjónaherbergi / fataherbergi:  Rúmgott, inna af því er fataherbergi með glugga og opnum skápum, parket á gólfi, 
Svefnherbergi 2: Inn af forstofur er rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi. 
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott, falleg innrétting og spegill, upphengt salerni, sturta,  flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús:  Með hvítri innréttingu, skápar, þvottasnúra, skolvaskur, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi. 
Bílskúr / geymsla: Er 35,4 fm, heitt og kalt vatn, gönguhurð, bílskúrshurðaopnari, lúga upp á geymsluloft, geymsla, ómálað gólfi.
Lóð: Lóðin er 938,6 fm, ófrágengi að framanverðu með möl í innkeyrslu, á baklóð er búið að þökuleggja, búið er að steypa undirstöður fyrir sólpall á suður og vesturhlið, steyptir sökklar og dregarar komnir  á lóð sem ætlað er fyrir geymsluskúr (lögn komin fyrir vatn), komin er lögn út á lóð fyrir heita pottinn.

Glæsilegt fjölskylduhús á góðum stað Búðarhverfis og stutt í skóla, heilsurækt, verslanir og þjónustu -  Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir eins og hálfs árs til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.