Gyðugata 1 815 Þorlákshöfn
Gyðugata 1 , 815 Þorlákshöfn
78.500.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 131 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 0 6.640.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 131 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 0 6.640.000 0

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölum nýtt og vel skipulagt 4 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr að Gyðugötu 1. Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð eignar er 131 fm og þar af er bílskúr 27,3 fm. Húsið er hluti af Gyðugötu 1- 5 sem eru þrjú raðhús sem staðsett eru í Vesturbyggð sem er glænýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. 

EIGNIN AFHENDIST Á BYGGINGARSTIGI 5 (B3) ÞANN 15. JÚLÍ 2024 -  VERÐ KR. 66.000.000 MILLJÓNIR. 

EIGNIN AFHENDIST Á BYGGINGARSTIGI 7 (B4) ÞANN 15. SEPTEMBER 2024 - VERÐ KR. 78.500.000 MILLJÓNIR. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignarinnar: Anddyri, þrjú svefnherbergi, stofa / borðstofa og eldhús í opnu alrými, baðherbergi og þvottahús.

Byggingarstig 7 -  fullgerð bygging:

Frágangur utanhúss:
  • Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með hvítu bárujárni og með bambusvið í innfellingum.
  • Svartar vindskeiðar verða komnar og fúavarðar.
  • Þakrennur og niðurföll verða frágengin.
  • Svartir gluggar og hurðir verða fullfrágengin og glerjað.
  • Aksturshurð verður í bílskúrum.
  • Lóðin verði þökulögð, nema innkeyrsla sem verði grófjöfnuð með mulningi (grjótmulningur sem inniheldur nánast engan sand). Skjólveggur komin upp á milli húsanna. 
  • Sorptunnuskýli verða komin. 

Frágangur innanhúss:
  • Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin.
  • Ísteyptar hitalagnir verða í öllum gólfum og verður tengigrind fyrir hita frágengin.
  • Rafmagn verður frágengið í töflu og tenglar og rofar komnir.
  • Allir milliveggir verða komnir og verða klæddir með nótuðum spónaplötum og loftin klædd með loftaþiljum. Sparslað yfir hefti og ójöfnur og málað í litum að vali kaupenda.
  • Flísar á gólfi í baðherbergi, forstofu og þvottahúsi. Parket á eldhúsi, stofu og svefnherbergjum. 
  • Epoxy gólfefni lagt á bílskúrsgólf.
  • Í eldhúsi, baði og þvottahúsi verða vandaðar IKEA innréttingar eða sambærilegt, helluborð, ísskápur, ofn og uppþvottavél verða í eldhúsi.
  • Innihurðir frá Húsasmiðjunni/Byko/Birgisson.
  • Veggir í baðherbergi klæddir með FIBO baðplötum frá Þ. Þorgrímssyni, hreinlætistæki uppsett.
  • Innbyggðir skápar verða í svefnherbergjum (IKEA eða sambærilegt).

Kaupendur geta í samráði við eiganda óskað eftir breytingu á skilalýsingu s.s. við val á gólfefnum, innréttingum og annað. Einnig er hægt að semja um að fá eignina á öðrum byggingarstigum en tiltekið er.
 
Almennt:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald. 
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
 
Byggingaraðili: Hrímgrund ehf. 

Vakin er athygli á því að myndir í auglýsingu eru tölvuteiknaðar og endurspegla ekki alveg endanlegt útlit með tilliti til smáatriða og lita.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir eins og hálfs árs til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.