Sambyggð 14 815 Þorlákshöfn
Sambyggð 14 , 815 Þorlákshöfn
29.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 53 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 26.200.000 29.300.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 53 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 26.200.000 29.300.000 0

Helgafellfasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í nýlegu 2 hæða fjölbýli með sér inngangi og sér verönd. Heilarfermetrafjöldi er 53,3 fm. og verönd til vesturs er 6.7 fm. Góð lofthæð er í íbúðinni.

TILVALIN FYRSTA EIGN - AFHENDINGU VIÐ KAUPSAMNING. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST


Eignin skiptist í: forstofu, opið stofu og eldhúsrými, svefnherbergi, gang og baðherbergi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign. 

Nánari lýsing: 
Forstofa:  Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi, skóskápur. 
Eldhús: Í opnu alrými. Með hvítri eldhúsinnrétting með bakarofni og helluborði, stál milli skápa, parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Í opnu alrými. Rúmgóð með útgengi út á verönd (sérafnotaflötur) til vesturs, hellulögð að hluta, parket á gólfi. 
Svefnherbergi:  Rúmgott svefnherbergi með góðum Ikea fataskápum, parket á gólfi.  
Baðherbergi:  Með hvítri innréttingu, speglaskáp, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og inn í sturtu. 
Gangur: Parket á gólfi.
Sameign:  Sameiginlegt inntaksrými og vagna / hjólageymsla. 
Húsið: Er byggt 2019 og er hús á tveimur hæðum með burðarvirki úr stálgrind en sökkulveggir og botnplata eru staðsteypt. 
Lóð: Lóðin er 2273,2 fm. Góð aðkoma er að húsinu og framan við húsið eru alls 28 bílastæði, þar af 2 merkt hreyfihömluðum .

Eignin er vel staðsett, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir - frábær fyrstu kaup. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected].

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.